Fyrsti bankinn upp úr ruslinu

Íslandsbanka hefur fyrstum af íslenskra viðskiptabanka tekist að komast upp úr víðfrægum ruslflokki sem urðu örlög þeirra allra eftir hrun - og telst staða hans nú góð í alþjóðlegu tilliti, en hann er kominn í svokallaðan fjárfestingarflokk sem metur horfur bankans stöðugar.


Það er lánshæfisfyrirtækið Fitch Ratings sem gefur Íslandsbanka þessa einkunn eftir að fulltrúar bankans höfðu frumkvæði að því að fyrirtækið mæti horfur bankans upp á nýtt. Birna Einarsdótttir segir að þetta endurmat auki tækifæri bankans til að fjármagna sig heima en þó ekki síður erlendis, enda geti nú mun fleiri fjárfestar en áður keypt skuldabréf bankans. Það hljóti að teljast stór áfangi í endurreisn íslensks efnaahagslífs.


Fram kemur í áliti Fitch Ratings að Íslandsbanki sé vel búinn undir afléttingu gjaldeyrishafta.