Þingmenn hafa rætt vantrauststillögu Samfylkingarinnar og Pírata í garð Sigríðar H. Andersen dómsmálaráðherra síðan um kl 16:30 í dag. Þetta er fyrsta vantrauststillaga sem lögð hefur verið fram á ráðherra í 64 ár, eða síðan borin var fram vantrauststillaga á Bjarna Benediktsson þáverandi menntamálaráðherra, árið 1954.
Atkvæðagreiðslunnar er nú beðið en forseti tilkynnti upphaf hennar um klukkan hálf sjö. Enn hafa nokkrir þingmenn kveðið sér hljóðs til að ræða atkvæðagreiðsluna.
Jón Þór Ólafson þingmaður Pírata sagði meðal annars að réttaróvissa myndi ríkja um Landsrétt næstu árin og framgangur ráðherra yrði kærður til mannréttindadómstólsins „Það verður sagt að dómararnir séu í þakkarskuld við hana.“ Hann sagði ráðherra hafa svikið alla aðila í þessu ferli frá upphafi til enda og ekki viðurkennt mistök.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði að engar nýjar upplýsingar lægju til grundvallar vantrauststillögunni og að réttaróvissunni yrði ekki breytt með afsögn Sigríðar. „Ég krafðist ekki afsagnar [á síðasta þingi] og sú afstaða hefur ekki breyst,“ sagði hún.