Fyrsta skipti sem kona stjórnar

Það verður AFL í krafti kvenna í kringum kventónleika Kristjönu Arngrímsdóttur og SinfoniaNord nú á sunnudag.

Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi, sem er með höfuðstöðvar á Akureyri mun afla fjár til starfsemi sinnar með sölu aðgöngumiða á tónleikana. Menningarfélag Akureyrar leggur Aflinu lið með framleiðslu sinni.

Kvenarmur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands stendur að þessari tónlistarveislu. Tónlist íslenskra og erlendra kvenna verður í hávegum höfð í tilefni þess að hundrað ár eru liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt. 
Petrea Óskarsdóttir mun flytja flautukonsert eftir Cecile Chaminade og Kristjana Arngrímsdóttir mun syngja úrval laga frá farsælum ferli sínum í útsetningum Báru Grímsdóttur og Arnar Eldjárn. Kvennasveitin mun leika lög frá ýmsum tímabilum, þar á meðal Joga eftir Björk og Ástarsálm Edith Piaff, sem hefði orðið 100 ára 19. desember næst komandi. Stúlknakórinn Ísold leggur kvenfyrirmyndum sínumlið á tónleikunum.

Í fyrsta sinn í sögu Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mun kona stjórna sveitinni. Það er engin önnur en Hallfríður Ólafsdóttirflautuleikari og höfundur ævintýrsins um Maxímús Músíkús. Listrænn stjórnandi tónleikanna er Ásdís Arnardóttir.

Þessir sérstöku tónleikar SinfoniaNord verða í Hofi sunnudagskvöldið 22.nóvember. kl 20.