Fyrsta samkynhneygða þingkonan

Fyrsti opinberi samkynhneygði þingmaður Færeyinga hlaut gott brautargengi í kosningunum til lögþingsins í gær, en þar er á ferðinni Sonja Jógvansdóttir sem bauð sig fram fyrir Jafnaðarflokkinn.

Sonja var raunar einn helsti sigurvegari kosninganna en hún hlaut þriðju bestu kosningu einstaklinga á Lögþingið. Í Færeyjum eru bæði kosnir flokkar og einstaklingar og einungis Aksel V. Johannessen, formaður Javnaðarflokksins og Høgni Hoydal, formaður Tjóðveldisins, hlutu betri kosningu en Sonja.

Umræða um samkynhneygð hefur verið næsta forpokuð í Færeyjum á síðustu árum - og fráleitt jafn frjálslynd og þekkst hefur á Íslandi um nokkurt árabil. Er skemmst að minnast þeirra fáleika sem þingmenn á Lögþinginu sýndu þegar Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra heimsótti Færeyjar í opinberri heimsókn, en að minnsta kosti einn þingmaðurinn landsins afþakkaði að sitja kvöldverðarboð með Jóhönnu vegna samkynhneygðar hennar.

Meðal þess sem tekist var á í kosningunum nú var hvort heimila eigi hjónabönd samkynhneigðra. Slíkt hefur strandað á núverandi stjórnarflokkum, einkum Miðflokknum sem hefur mjög sterkar kristilegar rætur.

Samsteypustjórn fjögurra mið- og hægriflokka féll í kosningum til Lögþingsins í Færeyjum í gær. Flokkarnir fjórir fengu samanlegt 16 þingsæti og töpuðu fjórum þingsætum. Sigurvegarar kosninganna eru Javnaðarflokkurinn, sem hlaut ríflega fjórðungsfylgi og átta þingsæti. Flokkurinn bætti þar með við sig tveimur þingsætum. 33 þingsæti eru á færeyska Lögþinginu.