Fyrsta óveður ársins skellur á í dag

Búast má við snörpum vindhviðum, líklega yfir 30 metrum á sekúndu undir Eyjafjöllum og við Öræfajökul í dag. Þar með ætlar fyrsta óveður ársins að láta á sér kræla - og væntanlega ekki það síðasta.

Þessu vinddjarfa fylgir dálítil snjókoma eða slydda, en þó þurrt um vestanvert landið á meðan að veðrið gengur yfir. Hiti verður um frostmark sem veit á hálku á vegum, jafnvel þá lítt séðu og lúmsku.

Það bætir í úrkomu síðdegis um sunnan- og austanvert landið og þá stígur hitinn upp í allt að sjö gráður, en mildast verður með suðurströndinni.

Austlæg átt  verður svo á morgun og dregur heldur úr vindi, en þá má búast við snjókomu eða slyddu á austanverðu landinu, rigningu sunnanlands, en lengst af verður úrkomulítið í öðrum landshlutum.

Það lægir um tíma suðvestanlands í fyrramálið.