Blásið hefur verið til opins málþings um aðgerðir gegn ofbeldi í nánum samböndum, þolendur heimilisofbeldis og kynferðisofbeldis. Verður þetta í fyrsta skiptið sem er fjallað um málefni þolenda ofbeldis á landsbyggðunum sérstaklega.
Málþingið verður haldið að Borgum við Norðurslóð á Akureyri í tengslum við 16. daga alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi. Að málþinginu standa Jafnréttisstofa, Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi, og Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri.
Meðal þeirra sem flytja erindi eru Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, Guðrún Ögmundsdóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu f.h. innanríkisráðherra, Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norðurþingi, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, Karen J. Sigurðardóttir, sálfræðingur við Sjúkrahúsið á Akureyri, Ingibjörg Elíasdóttir, lögfræðingur á Jafnréttisstofu og fulltrúi í samstarfsteymi gegn heimilisofbeldi, Kristján Már Magnússon, sálfræðingur hjá Körlum til ábyrgðar, Lísbet Harðar Ólafardóttir, talskona Sólstafa á Ísafirði og Ingibjörg Þórðardóttir, talskona Aflsins á Akureyri.