Fyrsta konan leiðir þýska jafnaðarmenn

Andrea Nahles var kjörin nýr formaður Jafnaðarmannaflokksins í Þýskalandi með 66% atkvæða á fundi flokksins í Wiesbaden í gær. Hún er fyrsta konan sem leiðir flokkinn í 155 ára sögu hans.

Nahles er fyrrverandi atvinnumálaráðherra Þýskalands. Hún er 47 ára einstæð móðir og er sögð röggsöm og hreinskiptin.

Anstæðingur hennar í formannskjörinu var líka kona, Simone Lange, borgarstjóri Flensborgar. Nahles segir kosninguna þýða að glerþak flokksins hafi verið rofið og verði opið hér eftir.

Nýi formaðurinn talaði fyrir núverandi stjórnarsamstarfi við Kristilega demókrata og systurflokk þeirra í Bæjaralandi. Það að hún fékk ekki óskoraðan stuðning í formannskjörinu þykir merki um klofning þýskra jafnaðarmanna vegna stjórnarþátttökunnar.