Fyrsta klámstjarna íslands orðinn fylgdarsveinn

Stefan Octavian Gheorghe, sem oft hefur verið sagður fyrsti íslenska klámstjarnan, segir frá því í viðtali við Morgunblaðið að hann hafi ákveðið að söðla um þegar hann hætti með unnusta sínum. Við það fór hann að einbeita sér meira að starfi sínu sem fylgdarsveinn í Las Vegas. 

„Líf mitt tók rosalega U-beygju þegar ég sleit sambandi okkar,\" segir hann við Morgunblaðið og bætir við að hann sé enn að vinna í sínum mákum eftir sambandsslitin.

Hann segir að hann starfi nú mikið í fylgdarþjónustu og sinni með fram því verkefnum í klámiðnaðinum. Stefán segir að viðskiptavinir hans séu þeir sem kaupi af honum þjónustuna sé oft háttsett fólk sem starfi hjá bandaríska ríkinu og fólk sem á mikinn pening en sé einmana. 

„Það er hátt­set fólk hjá banda­ríska rík­inu sem kaup­ir þjón­ustu af mér. Þú get­ur farið út að borða, þú get­ur farið í ferðalag með ein­hverj­um. Þetta er rosa oft einmana fólk sem á allt of mikið af pen­ing­um. Stund­um hitti ég gifta ein­stak­linga sem eru í felu­leik en kom­ast ekki út úr skápn­um vegna ótta.“

 Verkefnin segir hann líka vera mismunandi og allt frá því að fara út að borða yfir í að fara í skemmtiferðasiglingu.

„Það var rosa gaman,\" segir Stefan og bætir við að sá sem bauð honum í siglinguna hafi ekki viljað neitt kynferðislegt. „Hann vildi bara félagsskap.“