Fyrsta íbúðalánið nam 50 þúsundum

Þess er minnst í dag að 60 ár eru liðin frá því að fyrsta opinbera íbúðalánið á Íslandi var gefið út. Lánið var veitt til byggingar einbýlishúss í smáíbúðahverfinu, það var til 25 ára með 7% föstum óverðtryggðum vöxtum og nam 50.000 kr.

Það var nýstofnuð Húsnæðismálastofnun sem veitti lánið árið 1955 en á þessum tíma bjó stór hluti þjóðarinnar enn í torfbæjum og bröggum. 

Nú er það Íbúðalánasjóður sem gegnir hlutverki opinbers lánveitanda til húsnæðiskaupa en sjóðurinn varð til með lögum árið 1998. Á síðari árum hafa bankar og lífeyrissjóðir í auknum mæli lánað húsnæðiskaupendum en Íbúðalánasjóði er, ólíkt þessum aðilum, skylt að veita öllum húsnæðislán sem uppfylla lögbundin skilyrði. Sjóðurinn býður einnig sömu kjör um allt land. Lánveitingar sjóðsins eru takmarkaðar við minni og meðalstórar eignir að verðmæti upp að 30 milljónum króna en hámarkslán sjóðsins nema 24 milljónum króna.

Í fréttatilkynningu frá Íbúðalánasjóði í dag segir að á síðasta ári var afkoma hans jákvæð í fyrsta sinn frá bankahruni: \"Þá hefur náðst mikill árangur að undanförnu við að efla efnahag sjóðsins með sölu fullnustueigna, fjárfestingu lausafjár, bætingu lánasafnsins og endurskipulagningu skulda,\" segir þar.

Sérstök 60 ára afmælishátíð fer fram í dag á milli kl. 14-16 í Gamla bíói. Á þriðja hundrað manns hafa boðað komu sína en fundurinn er öllum opinn. Fjallað verður um íslenska húsnæðisstefnu síðustu sex áratuga og horft til framtíðar varðandi næstu byltingu í hönnun húsnæðis.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs:  „Húsnæðismál almennings eru reglulega í brennidepli og ekki síður nú um stundir. Íbúðalánasjóður veitir öllum húsnæðislán sem uppfylla lögbundin skilyrði, með skilmálum sem liggja fyrir við lántöku og það eru sömu kjör í boði um allt land. Þetta teljum við ákaflega mikilvægt. Einnig viljum við í auknum mæli sinna fræðslu til almennings og að fólk geti leitað til sjóðsins eftir óháðum samanburði á þeim kjörum sem í boði eru á markaðnum, hvort sem það er hjá bönkum eða lífeyrissjóðum. Það er stórt hagsmunamál að vel sé staðið að málum á húsnæðismarkaði og þar er Íbúðalánasjóður með mikla reynslu. Það segir sína sögu um framþróunina á þessum 60 árum að það eru 40.000 heimili í dag með lán hjá Íbúðalánasjóði.“