Fyrsta flugvélin á loft hér á landi fyrir sléttum 100 árum - mögnuð saga flugsins

Í tilefni 100 ára afmælis flugs á Íslandi stendur Flugmálafélag Íslands fyrir móttöku í dag, þriðjudaginn 3. september klukkan 16:00 á Reykjavíkurflugvelli. Þá verður þess minnst að þennan dag árið 1919 hóf flugvél sig fyrst til flugs á Íslandi. Það gerðist í Vatnsmýrinni í Reykjavík klukkan 17:00 þann 3. september 1919. Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson mun ávarpa viðburðinn.

Móttakan verður í flugskýli Geirfugls í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli, þar sem boðið verður upp á kaffi og veitingar.

Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna á Facebook-síðu viðburðarins.

Saga flugsins

Í tilefni 100 ára afmælis flugs á Íslandi framleiddi Hringbraut heimildaþáttinn Saga flugsins. Margt áhugavert kemur þar fram, þar á meðal þegar Húnn Snædal, ein af goðsögnum íslenska einkaflugsins, greinir frá því þegar hann varð fyrir því óláni að missa mótorinn í flugvél sinni til jarðar, sem varð þess valdandi að Húnn sveif í lausu lofti á prikinu sínu.

Saga flugsins var frumsýndur á Hringbraut á vordögum þessa árs og má sjá í heild sinni hér: