Fyrsta ferð Transavia með ferðamenn á vegum Voigt Travel kom í dag frá Rotterdam. Þetta er fyrsta flugið af 16 hjá Transavia í sumar til Akureyrar. Við þetta tækifæri tilkynnti Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel að ákveðið hefði verið að fljúga frá flugvellinum á Akureyri til Amsterdam næsta vetur. Flogið yrði á mánudögum og föstudögum frá 14. febrúar. Farnar yrðu alls átta ferðir. Flugleiðin er afrakstur viðamikils samstarfs Transavia og Voigt Travel. Flugfélagið hefur flogið til Lapplands í Finnlandi og Svíþjóð og norðurhluta Noregs um árabil fyrir Voigt Travel. Nú hefur Íslandi verið bætt við lista áfangastaða þess við heimskautsbauginn.
„Sem ferðaskrifstofa þurfum við stöðugt að skapa okkur sérstöðu,“ segir Cees van den Bosch, forstjóri Voigt Travel, sem var meðal farþega í þessu flugi til Akureyrar. „Ísland hefur aldrei verið vinsælla, en aðallega fyrir stutt stopp sem viðkomustaður, og þessi magnaði áfangastaður á betra skilið en það. Þess vegna höfum við vísvitandi valið að fljúga til Akureyrar til að gera farþegum okkar kleift að ferðast strax utan alfaraleiða og taka sér tíma til að kanna landið. Norðurhluti Íslands er enn að miklu leyti ósnortinn og þar má finna alveg jafnmikið af fossum, svörtum ströndum, eldfjöllum og leirböðum og á Suðvesturlandi.“
Charles Verstegen, framkvæmdastjóri: „Transavia er með sterka stöðu á þekktum ferðamannastöðum í Suður-Evrópu, Norður-Afríku og Miðausturlöndunum. Með þessu þægilega beina flugi til Akureyrar er nú einnig hægt að komast til norðurhluta Evrópu frá Hollandi á sumrin.“