Fyrsta banaslysið á árinu

Einn lést í al­var­legu um­ferðarslysi sem varð á Njarðarbraut í Reykja­nes­bæ rétt fyr­ir klukk­an fimm í dag, en þar rákust tvær bifreiðar saman. Þetta er fyrsta banaslysið í umferðinni á þessu ári.

Sá sem lést var ökumaður annarr­ar bif­reiðar­inn­ar, en hann var einn í bílnum. Í hinum bílnum var einn farþegi auk ökumanns og hlutu báðir hlutu minni­hátt­ar meiðsli. 

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.