Banaslys í langadal

Karlmaður lést í umferðarslysi í Langadal í gærkvöldi. Bifreið mannsins hafði lent utan vegar og oltið margar veltur. Lögreglu var tilkynnt um slysið um klukkan 22:00 í gær og fór björgunarlið þegar á vettvang. Maðurinn var alvarlega slasaður og báru lífgunartilraunir ekki árangur. Var hann því úrskurðaður látinn á vettvangi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra. Þar segir að maðurinn sé með erlent ríkisfang og að ekki sé unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu.

Fréttablaðið greinir frá því að um sé að ræða fyrsta banaslys ársins í umferðinni.