Leikarinn, leikstjórinn og þáttastjórnandinn ástsæli, Karl Ágúst Úlfsson vill að fyrir hvern einn íslenskan flóttamann sem flýr góðærið hér á landi, fái einn flóttamaður sem er að flýja skálmöldina í Sýrlandi að koma til landsins. Það séu sanngjörn skipti.
Þannig mæltist kappanum í upphafi þáttar síns, Helginni, sem hóf að nýju göngu sína á Hringbraut síðastliðið laugardagskvöld, en í haust og vetur verður þátturinn sendur út á laugardagskvöldum í stað föstudagskvölda, klukkan 20:00 og er hann endursýndur strax klukkan 22:00.
Eins og vanalega fór Karl Ágúst á kostum í inngangi sínum, svo sem með þessum orðum: \"Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skráði sig á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison á netinu, en eins og fram hefur komið í fréttum var það gert af „mikilli léttúð“. — Fyrirgefiði, en hefur einhver skráð sig inn á þessa síðu af einhverju öðru en léttúð? „Ég skráði mig inn á framhjáhaldssíðu af ábyrgð og miklum alvöruþunga.“ Ég veit það ekki,\" sagði leikarinn sem er ekkert mannlegt óviðkomandi.
Og hann hjó í sama knérunn: \"Einkennisnafn Bjarna á síðunni var IceHot one, eða IceHot einn — eða IceHot fyrsti. Er þetta hugmynd? Væri það ekki spor inn í nútímann að leggja niður löngu úrelt ávörp á Alþingi eins og „háttvirtur þingmaður“, en taka í staðinn upp heiti eins og IceHot? „Næstur tekur til máls IceHot fyrsti, Bjarni Benediktsson.“
En það verður að segjast eins og er,\" héld Karl Ágúst áfram \"að þjóðin fór alveg á hliðina yfir þessu máli. Fólk spurði: Hvað er í gangi? Við erum rétt nýlaus við Icesave og þá fáum við Icehot í hausinn!!! Við borgum ekki Icehot, það er alveg á hreinu! Ólafur Ragnar, þú skrifar ekki undir! Já, og talandi um forsetann - Ólafur Ragnar setti Alþingi í síðasta skipti í vikunni. Þetta mun vera í þriðja skipti sem Ólafur Ragnar setur þingið í síðasta skipti.\"
En aftur að ástandinu á Evrópu, eins og það kom leikaranum fyrir sjónir: \"Umræðan um flóttafólk hefur vakið hörð viðbrögð hjá sumum, sem benda á að á Íslandi sé hópur bágstaddra sem vert sé að aðstoða áður en farið sé að hleypa þurfandi fólki frá öðrum löndum inn í landið í stórum stíl. Þetta er auðvitað alveg hárrétt. Hér á landi er hópur fólks sem býr við stanslausan ótta og óöryggi og á það stöðugt yfir höfði sér að lifibrauðið verði tekið frá því. Ég er að sjálfsögðu að tala um útgerðarmenn,\" sagði Karl Ágúst, bljúgur á svip og varð því næst hugsað til nemenda landsins: \"Háskólanemar á Íslandi eru hættir að kaupa bækur. Þetta er uggvænleg þróun, en ólæsi er vaxandi vandamál hér á landi og kennsla í svokölluðu byrjendalæsi í grunnskólum hefur haft þau einu áhrif að nú er fólk byrjendur fram eftir öllum aldri.\"
Og loks þetta: \"Megavika Dómínós er hreint húmbúkk hjá megavikum bankanna, sem nú ná yfir allt árið, þannig að hver banki fyrir sig hagnast að minnsta kosti um 200 milljónir á dag alla daga ársins. Bankarnir styðja líka heilshugar stóraukinn flóttamannastraum til Íslands. Ég meina, þarf þetta fólk ekki allt á yfirdráttarheimild að halda? Með hæstu vöxtum sem fundnir hafa verið upp,\" spurði Karl Ágúst sem brast að lokum í söng við lagið hans Óðin Valdimarssonar um Ferðalokin ljúfu:
Sól slær silfri á hnúka
sjáið trampólín fjúka.
allt er svart yfir okkur, svo
ég hringi í einn einn tvo.
Hægt er að skoða Helgina í heild sinni á hringbraut.is eða í klippum inn á vefnum, en þátturinn verður sem fyrr segir frumsýndur klukkan 20:00 á laugardagskvöldum þar sem Karl Ágúst og nýr liðsmaður hans, Karl Olgeirsson hljómborðsleikari gantast á milli þess sem góðir gestir stinga inn nefi.