„fyrst þarf þó að byrja á að skil­greina...“

Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skrifar um auðlindagjald á Kjarnann. Gunnar Bragi vill sýnilega að við förum okkur varlega í allar breytingar.

Hann skrifar: „Við tökum veiði­gjald af tugum teg­unda og fáum millj­arða til rík­is­ins árlega í arð fyrir rík­i­s­jóð. Okkar fyr­ir­komu­lag er þó ekki án galla og mik­il­vægt er að fylgj­ast með hvað aðrir gera. Í því sam­hengi þarf að færa umræð­una um afnota­gjald fyrir auð­lindir yfir á allar auð­lind­ir. Finna kerfi sem hægt er að beita á allar þær auð­lindir þar sem greitt er fyrir afnot af eða ætti að greiða fyr­ir. Ég tel fýsi­leg­ast að beita skatt­kerf­inu til þess. Fyrst þarf þó að byrja á að skil­greina hvað eru auð­lindir og taka síðan ákvörðun um hvort við viljum yfir­leitt að greitt sé gjald fyrir afnot af þeim.“

Hann opnar á breytingar á auðlindagjaldi, en þó ekki fyrr en við finnum kerfi sem hægt er að beita á allar þær auð­lindir þar sem greitt er fyrir afnot af eða ætti að greiða fyr­ir. Og hann vill einnig að byrjað verði á að skil­greina hvað eru auð­lindir og taka síðan ákvörðun um hvort við viljum yfir­leitt að greitt sé gjald fyrir afnot af þeim.

Semsagt. Slá málinu á frest. Frestur er jú á illu bestur.

„Við í Fram­sókn hefðum viljað sjá nátt­úru­auð­lindum lands­ins komið tryggi­lega fyrir í eigu þjóð­ar­inn­ar. Það hefur þó ekki náðst meiri­hluti fyrir því enn sem komið er. Sú breyt­ing og jafn­vel fleiri er fyr­ir­sjá­an­legt að ráð­ast þurfi í á næstu árum af skyn­semi og var­færni,“ skrifar ráðherrann.

Hann er til í allt, bara ekki núna.

-sme