Fyrst tekin af mömmu 3ja ára

Rósa Ólöf Ólafíudóttir var gestur Lindu Blöndal á Þjóðbraut.  Rósa ólst upp í braggahverfinu Kamp Knox á Grímsstaðaholtinu, í ýmis konar bæjarhúsnæði og á nokkrum fósturheimilum til margra ára sem barn. Líf hennar markaðist af mikilli fátækt og veikri fjölskyldu - og skömm. 

Hún var fyrst tekin af móður sinni þriggja ára en fyrstu fjórtán ár ævi sinnar var hún á þvælingi, eins og hún orðar það sjálf. Móðir hennar var líkamlega ófær um að sinna öllum börnum sínum, alvarlega bakveik en bræðurnir eru þrír. 

Það tók hana mörg ár að gangast við fortíð sinni og einum bræðra sinna, Lalla Johns.

Rósa hefur skrifað bók sem hún nefnir KÆRA NAFNA, og safnar fyrir útgáfu hennar á Karolinafund.

 

Þjóðbrautin er á dagskrá öll fimmtudagskvöld á milli kl.21 til 22 og er í umsjón Lindu Blöndal.