Sigrún synti yfir ermarsund

Sigrún Þuríður Geirsdóttir varð seint í gærkvöldi fyrsta íslenska konan til þess að synda yfir Ermarsundið. Hún lagði af stað í fyrrinótt og synti í 23 klukkustundir og þrjátíu mínútum betur.
 

Áður hafði hún synt með boðsundsveitum yfir sundið en þetta var hennar fyrsta tilraun til þess að synda á milli Englands og Frakklands ein. Hamingjuóskum hefur rignt yfir hana á samfélagsmiplum frá því á miðnætt. 

Sigrún sagði í Síðdegisútvarpinu á RÚV á miðvikudag að hún hefði leyfi til sundsins 8.-13. ágúst. Hún stefndi að því að leggja af stað um leið og veður leyfði, en erfitt væri að áætla hversu langan tíma sundið tæki: \"Það gæti tekið allt frá 13-14 tímum og upp í 18-19, þetta fer bara eftir straumum og veðurlagi. Það er það sem skiptir máli, hvernig veðrið er og hvernig sjórinn er og straumarnir,“ sagði Sigrún á miðvikudag áður en hún hélt til Englands.

Sigrún er vön sjósundkona. Hún hefur stundað sjósund síðan 2008. Hún hefur tvisvar áður synt boðsund yfir Ermarsundið. Þá synti hún boðsund beina sjólínu yfir Faxaflóa árið 2012 ásamt þremur öðrum konum. .