Fyrst bensínið og nú bækurnar

Formaður Félags bókaútgefenda staðfestir að fótur sé fyrir orðrómi um áform Costco heildversluanar á íslenska jólabókamarkaðnum. Ekkert virðist benda til annars en að íslenska bókin sé en þá vinsælasta jólagjöfin. Costco býður upp á bækur í búð sinni en ekkert er vitað um hvernig jólabókasölu Costco yrði háttað ef þá nokkuð verður af henni. RÚV er með frétt um þetta á vefsíðu.

Íslenska jólabókaflóðið vekur athygli víða um heim enda býsna sérstakt menningarlegt fyrirbæri segir á vef Forlagsins. Forlagið hefur fengið erlenda bókmenntagagnrýnendur til að kynna sér flóðið. Eftir að kíkja í íslenskar bókabúðir þar sem bókastaflarnir ná frá gólfi og upp í rjáfur skilja erlendir gestir vel orðið bókaflóð eftir að hafa séð bókamagnið.

 

 

[email protected]