„Af hverju má ekki takmarka flugeldaskot við ákveðin svæði t.d. þar sem eru brennur. En flugeldaskot frá heimahúsum bönnuð að viðlögðum háum sektum.
Svo verða hjálparsveitir að fá annan tekjugrundvöll en þann að selja skaðlega flugelda sem slysahætta stafar af og sem valda heilsutjóni, slysahættu og stórkostlegri mengun.“
Þetta segir Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Frjálslyndaflokkinn á Facebook-síðu sinni. Hann stingur upp á að flugeldum verði skotið frá ákveðnum svæðum. Hann segir:
„ ... með svipuðum hætti og fólk getur gengið með hundana sína á ákveðnum svæðum en ekki alls staðar.“
Þá spyr Jón hvort sá sem sé með lungnasjúkdóm eigi ekki rétt á að vera laus við loftmengun sem fylgir flugeldaskotum. Hann færir síðan frekari rök fyrir máli sínu:
„Við bönnum t.d. ákveðin lyf vegna þess að örfáir kunna ekki með þau að fara. Það er nú heldur betur meiri frelsisskerðing en það að binda flugeldaskot við ákveðin skotsvæði. Eina sem tapaðist við það er, að fólk gæti ekki verið dauðadrukkið að handfjatla hættulega hluti.“