Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í Reykjavík 2020. Alls sóttu 45 um starfið en sjö drógu síðar umsóknir sínar til baka. Hlutverk verkefnastjóra er að vinna að undirbúningi hátíðarinnar í samráði við stjórn verkefnisins og Evrópsku kvikmyndaakademíuna og eru helstu verkefni fram undan að leiða saman samstarfsaðila, halda utan um samningagerð, afla styrkja, og vinna drög að styrktar- og kynningarstefnu verkefnisins.
Það var mat stjórnar að Ragnheiður Elín uppfyllti best þær hlutlægu og huglægu kröfur sem settar voru fram í starfslýsingu. Verkefnisstjóri vinnur samkvæmt fyrirliggjandi verkefna- og fjárhagsáætlun og ber ábyrgð gagnvart stjórn verkefnisins. Ragnheiður Elín er með MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown University í Bandaríkjunum og BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í Hörpu í desember 2020 og er húsið sagt vera forsenda þess að hægt sé að halda viðburð sem þennan á Íslandi. Verkefnið er viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar en í stjórn þess eru: Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, sem jafnframt er formaður stjórnar fyrri hluta starfstímans er fulltrúi ráðuneytisins tekur við formennsku, Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Marta Guðrún Skúladóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Huld Ingimarsdóttir, skrifstofustjóri fjármála og rekstrar hjá menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Sigurjóna Sverrisdóttir, tilvonandi framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík. Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu.