Björn hættur við að hætta: „veislan heldur áfram“

Björn Þorfinnsson fyrrverandi fréttastjóri DV er genginn til liðs við Fréttablaðið. Björn var ráðinn til DV snemma árs árið 2015. Hann hætti á DV í febrúar á þessu ári. Björn þykir með snjallari blaðamönnum landsins. Björn hittir þar fyrir tvo aðra fyrrverandi starfsmenn DV, þá Ara Brynjólfsson og Kristinn Hauk Guðnason sem einnig starfaði sem fréttastjóri á DV.

Björn greinir frá því á samskiptamiðlum að hann sé hættur við að hætta í fjölmiðlum. Björn bætir við:  

„Sem er frekar óvenjulegt enda elska ég að taka algjörar u-beygjur á starfsferli mínum. Vandamálið er að mér finnst bara svo gaman að skrifa og því gat ég ekki alveg slitið mig frá þessu. Veislan heldur því áfram en á nýjum og spennandi vettvangi. Allar ábendingar um alvarlegar, skemmtilegar en ekki síður dramatískar fréttir eru vel þegnar.“

Björn hóf störf núna 1. september.