Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara. Sakarefni ákærunnar, sem er dagsett 28. júní, er peningaþvætti.
Júlíus Vífil var einn þeirra stjórnmálamanna sem voru opinberaðir í Panamaskjölunum og greint var frá í sérstökum Kastljósþætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal annars fram að hann hefði í ársbyrjun 2014 stofnað félagið Silwood Foundation á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félagsins að nafn Júlíusar Vífils kæmi hvergi fram í tengslum við félagið, samkvæmt umfjölluninni.
Nánar á
https://kjarninn.is/skyring/2018-08-15-fyrrverandi-borgarfulltrui-akaerdur-fyrir-peningathvaetti/