Fyrrum varaþingmaður VG segir „samsæriskenningar“ Moggans langsóttar í þetta skiptið

„Það telst víst ákveðin tegund viðurkenningar að vera umfjöllunarefni staksteina Moggans. Þessi samsæriskenning og ætluð spilling er töluvert langsótt samt,“ segir Þorsteinn V. Einarsson, fyrrum varaþingmaður Vinstri grænna og umsjónarmaður verkefnisins Karlmennskan. Hann hlaut nýverið hæstan styrk úr jafnréttissjóði fyrir verkefnið þar sem hann reynir að brjóta staðlaða ímynd karlmennskunnar.

Morgunblaðið gerði styrkveitingu þessa að umfjöllunarefni sínu í Staksteinum í gær. Þar er þessi styrkveiting gerð tortryggileg og ýjað að því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi ákveðið að veita Þorsteini styrkinn vegna tengsla hans við VG.

Þar er Þorsteinn einnig kallaður varaþingmaður VG en hann hætti því starfi fyrir áramót. „Það hefur tekið mörg ár að ræða styrki til fjölmiðla og niðurstaða í því liggur ekki enn fyrir. Meðal annars í því samhengi vekur athygli að varaþingmaður VG skuli nú hafa fengið einn hæsta styrkinn úr Jafnréttissjóði til að skrifa pistla og vinna með Stundinni,“ segir í Staksteinum en Þorsteinn vinnur mörg verkefni Karlmennskunnar í samstarfi við Stundina.

Þá segir í Staksteinum að einhverjum kynni að hafa dottið í hug að það væri óviðeigandi af Katrínu að veita honum styrkinn af ýmsum ástæðum, „en sennilega verða ekki margir til að hafa orð á því, enda vitað að slíkt myndi kalla flóðbylgju fúkyrða frá „aktívistum“, jafnvel ríkisstyrktum, yfir viðkomandi.“

Þorsteinn leiðrétti þá nokkur atriði í færslu á Facebook í dag og sagði þar þessa „samsæriskenningu og ætlaða spillingu“ Morgunblaðsins töuvert langsótta:

„1) Ég er ekki varaþingmaður og raunar hætti öllu starfi með Vg fyrir áramót.
2) Styrkurinn er fyrir verkefni Karlmennskunnar og ég vel með hverjum ég vil starfa með.
3) Ákvörðun styrks er tekin af fagráði (5 sérfræðingum) og stjórn sjóðsins (3 sérfræðingum) og því kemur Katrín ekki að ferlinu, nema til að afhenda á táknrænan hátt sem ráðherra jafnréttismála,“ segir hann.

„En ég þakka kveðjuna frá Hádegismóum og væri gjarnan til í samstarf. Var þetta ekki annars beiðni um það?“