Fyrrverandi þingmaður og sendiherra, Eiður Svanberg Guðnason, telur að Halla Tómasdóttir hafi tekið of stórt upp í sig þegar hún ræddi við fjölmiðla í gær, en þá opnaði hún formlega kosningaskrifstofu sína. Halla býður sig fram til forseta.
\"Það má margt segja um Ólaf Ragnar Grímsson. Ég hef sagt margt um Ólaf Ragnar Grímsson,\" segir Eiður sem hefur verið gagnrýninn á störf forseta Íslands.
\"En þegar Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi líkir Ólafi Ragnari Grímssyni við Robert Mugabe eins og hún gerði áðan í fréttum Stöðvar tvö, þá afhjúpar hún dómgreindarleysi sitt - og fáfræði. Minnumst ekki á mannasiði,\" skrifar Eiður á facebook.
Almennt hefur mátt lesa þann skilning á facebook að Halla hafi verið að bera Ólaf og Mugabe saman út frá sameiginlegum óhemju löngum valdatíma beggja sem þykir ekki lýðræðislegur. En uppsker einkunn sendiherrans fyrrverandi um dómgreindarskort, fáfræði og vonda mannasiði.