Fyrrum fréttastjóri: ekki meira fé í rúv!

Elín Hirst, fyrrverandi fréttastjóri RÚV á árunum 2002 til 2008 segist ekki geta stutt breytingu á fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2016 sem fela myndi í sér meira fé til RÚV en nú er.

Elín er í dag þingmaður Sjálfstæðisflokksins og skrifar grein þessa efnis í Morgunblaðið í dag, en þar leggst hún á sveif með formanni og varaformanni fjárlaganefndar sem hafa áður lýst því yfir að frekari fjárframlög til stofnunarinnar verði ekki liðin. 

Samkvæmt gildandi fjárlagafrumvarpi á að lækka útvarpsgjaldið úr 17.800 krónum í 16.400 krónur. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri hefur sagt að ef gjaldið verði lækkað þá kalli það á niðurskurð hjá RÚV. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur boðað að hann muni leggja fram frumvarp á næstunni um að útvarpsgjaldið verði óbreytt.

Mikil andstaða er bæði innan Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks um að halda gjaldinu óbreyttu og er mjög þrýst á ráðherra að lækka það.