Fyrrum fréttastjórar deila hart á rúv

Stjórnarþingmennirnir Elín Hirst og Karl Garðarsson, sem eiga það sameigjnlegt að hafa gegnt fréttastjórastöðu á Stöð 2, skrifa í dag sameiginlega ádeilu á Ríkissjónvarpið fyrir meinta áróðurstilburði þess í garð barna.

Þessum tveimur núverandi þingmönnum, Elín úr Sjálfstæðisflokki, Karl úr Framókn, var greinilega ekki skemmt yfir Stundinni okkar á gamlársdag og stinga því sameiginlega niður penna í tilefni af pólitískri slagsíðu stofnunarinnar: \"Í barnaþættinum Stundinni okkar gaf að sjá nokkur innslög sem lituðust mjög af pólitískum áróðri, en áttu á sama tíma lítið sem ekkert skylt við barnaefni,\" skrifa þingmennirnir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag, en þess má geta að fyrir utan að stjórna fréttum Stöðvar 2 á sínum tíma, sem greinarhöfundar eiga sameiginlegt, var Elín lengi vel fréttastjóri á RÚV.

\"Í barnaþættinum mátti sjá forsætisráðherra og fjármálaráðherra þeysast um á gjöreyðingarskipinu \"einkavæðarinn\" og tortíma bæði Landspítalanum og Ríkisútvarpinu, á milli þess sem þeir gerðu lítið úr heilbrigðisstarfsmönnum,\" skrifa þingmennirnir og bæta við: \"Á öðrum stað í þættinum mátti heyra hvað Eyþór Arnalds hefði verið \"leiðinlegur\" á árinu, en þannig vildi til að hann sat í nefnd sem skilaði af sér svartri skýrslu um fjárhag Ríkisútvarpsins í fyrra.\"

Þau segja að í þessum barnatíma hafi þeim skilaboðum verið komið áleiðis að stjórnvöldum væri ekki treystandi og að þau vilji eyðileggja grunnstoðir samfélagsins.

Elín og Karl komast að þeirri niðurstöðu að pólitískur áróður af þessu tagi, sem beinist að börnum, sé ólíðandi og í blóra við friðhelgi barna gagnvart hatursfullri umræðu.