Fyrrum flugstöð í Sauðlauksdal við Patreksfjörð sem var byggð árið 1983 er nú auglýst til sölu hjá Ríkiskaupum og er óskað eftir tilboðum.
Fasteignirnar sem eru til sölu eru á 9.959 fm leigulóð og þarfnast viðhalds, segir í auglýsingunni.
Um er að ræða 225 fm byggingu ásamt 40 fm vélargeymslu sem var byggð ári seinna. Í auglýsingu stendur: „Fasteignirnar standa á fallegum stað við aflagðan flugvöll Patreksfjarðar í Sauðlauksdal\".