Sigríður Ásthildur Andersen, fyrrum dómsmálaráðherra, veltir fyrir sér hvort að fjárframlög til Samtakanna 78, sem hún titlar félag út í bæ, sé ástæðan fyrir verðbólgunni sem mælist þessa dagana hér á landi.
Í færslunni deilir Sigríður mynd af frétt frá Viðskiptablaðinu þar sem fjallar um að árlegt framlag til Samtakanna 78 væri aukið og að það væri ástæða verðbólgunnar.
Ástæða verðbólgunnar? Hér er ein:
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) February 17, 2023
25 milljóna árlegt framlag + 15 milljóna viðbót + 15 milljóna viðbótarviðbót - til félags úti í bæ. #Ástæðaverðbólgu pic.twitter.com/mexfdkhRrH
Færsla Sigríðar hefur vakið mikla athygli og meðal þeirra sem gagnrýna færsluna er Felix Bergsson, útvarpsmaður, leikari og þúsundþjalasmiður.
„skv þessu fá Samtökin 78 sömu upphæð á ársgrundvelli og tveir/þrír þingmenn á Alþingi Íslendinga. mikið er örlætið og óskaplega hlýtur þetta að valda mikilli verðbólgu.“
🤣😂 skv þessu fá Samtökin 78 sömu upphæð á ársgrundvelli og tveir/þrír þingmenn á Alþingi Íslendinga. mikið er örlætið og óskaplega hlýtur þetta að valda mikilli verðbólgu..
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) February 17, 2023