Auglýsingar frá hóp um örugg matvæli eru byrjaðar að birtast Íslendingum Facebook og Youtube. Á heimasíðu hópsins kemur meðal annars fram að rýmkun á reglum um innflutning geta haft neikvæð áhrif á öryggi matvæla á markaði. Óheftur innflutningur sé því ekki skynsamlegur. Hópurinn sem stendur bak við þessar auglýsingar eru 26 fyrirtæki og félagasamtök. Það sem öll þessi fyrirtæki eiga sameiginlegt er að þau framleiða öll matvæli eins og til dæmis kjöt og mjólkurvörur. Í auglýsingum hópsins er sagt að ekki sé skynsamlegt að flytja inn hvaða matvæli sem er þó að það sé hægt. Er sérstaklega talað um þá áhættu sem fylgir innflutti kjöti vegna notkunar á sýklalyfjum í erlendu kjöti.
Félag atvinnurekanda benti á í dag að nokkur af þeim fyrirtækjum sem taka þátt í verkefninu öruggur matur eru sjálf að flytja inn kjöt frá útlöndum. Um 41% af öllum kvóta sem gefinn er út vegna innflutnings á kjöti er notaður af sömu fyrirtækjum og þeim sem fjármagna birtingu auglýsinganna, ásamt Stjörnugrís.
Í samtali við Hringbraut segir formaður bændasamtakanna að eitt af markmiðum auglýsinganna sé að láta fólk hugsa um hvaða kjöt það sé að kaupa. „Fólk á bara að hugsa málið, það á bara að spyrja hvaðan maturinn kemur og hvernig hann er framleiddur. Þetta er ekki síða sem vill banna innflutning á matvælum.“
Á heimasíðunni er mikið rætt um hættuna af sýklalyfjum og hvaða áhrif þau geta haft. Frysting kjöts hefur engin áhrif af magn af sýklalyfjum í kjötinu og samkvæmt yfirdýralækni og sóttvarnarlækning hefur frysting nánast eingöngu áhrif á kamfýlóbakter. Enginn munur er því á magni sýklalyfja í ófrosnu kjöti og frosnu kjöti. Bendir Félag atvinnurekanda á þann tvískinnung að fyrirtækin sem taka þátt í þessu átaki sem eru svo sjálf að flytja inn kjöt séu að vara við þessari hættu.