Fyrirtæki sem geta ekki vaxið

Víða er svo mikill hörgull á starfsfólki að fyrirtæki, sem eiga möguleika til vaxtar, geta ekki unnið að uppbyggingu þar sem fólk vantar til sinna störfum sem fylgja vextinum.

Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur og blaðamaður á Viðskiptablaðinu, hefur unnið fína fréttaskýringu um ástandið á vinnumarkaði. Hann er gestur í Þjóðbraut í kvöld.

Þar kemur margt forvitnilegt fram. Til dæmis hvernig störf hafa færst frá atvinnugreinum, sem hafa gefið eftir, til þeirra sem eru að vaxa. Þetta verður rakið mjög vel í þætti kvöldsins.

Ljóst er að miklar og jafnvel varanlegar breytingar eru að verða á íslenskum vinnumarkaði.