Fyrirtæki keyptu sig inn í "ísland í dag"

\"Ég hef ekki sagt frá þessu áður, en mánuðina áður en ég hætti á Stöð 2 var farið að bera á verulegum þrýstingi í þessa átt,\" skrifar sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason í blaðútgáfu Stundarinnar þar sem hann upplýsir hvernig fyrirtæki gátu keypt sig inn í þáttinn Ísland í dag á Stöð 2.

\"Maður fann fyrst fyrir því árið 2007 að auglýsinga- og markaðsdeildin væri að færa sig upp á skaftið með vilja yfirstjórnar fyrirtækisins, \" rifjar hann upp í tilskrifi sínu: \"Þá var rætt um það hvort ekki væri hægt að efla samstarf milli frétta- og dagskrárgerðarmanna og auglýsingadeildar. Reynt var að setja það í þann búning að efla ætti vitund um eðli mismunandi deilda fyrirtækisins og auka samstöðu. En á fréttagólfinu kveikti þetta á öllum viðvörunarbjöllum hjá flestum sem starfað höfðu í einhvern tíma við fréttaskrif,\" skrifar Sölvi.

Hann segir að á þessum tíma hafi það verið rætt í fúlustu alvöru hjá yfirstjórn fyrirtækisins að selja svokallað „product placement“ inn í sjálfan fréttatímann: \"Það náði aldrei lengra, þar sem það stoppaði hjá fréttastjóranum, sem eðlilega sá að slíkt væri í fyrsta lagi afar siðferðislega vafasamt og í öðru lagi mjög erfitt í framkvæmd án vitundar fréttamanna sem aldrei hefðu samþykkt neitt þessu líkt.\"

Hann kveðst hafa fengið þetta staðfest eftir að hann hætti störfum hjá fyrirtækinu, en þessar þreifingar hefðu fæstir starfsmenn haft hugmynd um. Ári síðar hafi breytingin svo átt sér stað: \"Skýrasta dæmið var þegar hálfgerð skipun kom frá yfirstjórninni, nánast upp úr þurru, um að birta ætti innslag í Íslandi í dag sem ekki aðeins var keypt af fyrirtækinu sem átti að fjalla um, heldur höfðu viðtölin í innslaginu verið tekin af fyrirtækinu sjálfu og það verið klippt og unnið af klippara og myndatöku­manni á þeirra vegum,\" skrifar Sölvi og bætir seinna við: \"Yfir fréttasviðið voru fengnir aðilar sem voru í nánu samráði við markaðsdeildina og eðlilegir veggir sem eiga að ríkja þar á milli voru smátt og smátt að molna niður.\"

Hann tekur svo dæmi: \"Á þessum tíma var verið að gera upp stúdíó Íslands í dag og þátturinn því sendur út beint af hinum ýmsu stöðum í bænum eins og árið á undan. Þar sem bakgrunnurinn var alltaf hlutlaus var svo sem ekkert sérstakt út á það að setja, fyrr en í desember 2008. Þá hafði verið ákveðið að senda út nokkra föstudaga í röð úr Blómavali, sem var svo sem ekki verri staðsetning en hver önnur. En þann 19. desember, kom ég að settinu með flennistórt Blómavals-skilti í bakgrunni. 

Þegar ég tjáði mína skoðun á því að það væri ekki boðlegt að taka fréttatengt viðtal við þessar aðstæður var mér tjáð að búið væri að semja um það við auglýsingadeildina og greiða fyrir það. Eftir nokkuð snörp orðaskipti fann ég borvél til að bora niður skiltið. Þátturinn fór í loftið án skiltisins ...\"​

Sjá má grein Sölva í heild sinni í blaðútgáfu Stundarinnar eða inni á stundin.is.