Fyrirtæki í ferðaþjónustu meðal þeirra sem greiða hæstu gjöldin

Ríkisskattstjóri hefur birt lista yfir þá sem greiða hæstu opinberu gjöldin á landinu árið 2018. Efst á listanum trónir Ríkissjóður Íslands, sem greiðir alls rúmlega 12 milljarða í opinber gjöld. Því næst koma bankarnir þrír, Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki. Reykjavíkurborg skipar fimmta sæti listans og Isavia það sjötta.

Athygli vekur að tvö ferðaþjónustufyrirtæki eru meðal 10 efstu gjaldenda; Icelandair sem alls greiddi næstum 1,6 milljarða í opinber gjöld, og Bláa lónið, sem greidd 1,1 milljarð.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018180928949/fyrirtaeki-i-ferdathjonustu-medal-theirra-sem-greida-haest-opinber-gjold