Fyrirskipaði meiri árásir á gaza

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði í morgun að hann hefði fyrirskipað her landsins að gera frekari árásir á Gaza. Það sé svar Ísraelsríkis við eldflaugaárásum Palestínumanna. „Ég hef fyrirskipað hernum að halda áfram miklum árásum á hryðjuverkamenn á Gaza og styrkja hersveitir við Gaza með skriðdrekum, stórskotaliði og hermönnum,“ sagði Netanyahu við upphaf ríkisstjórnarfundar í morgun. RÚV fjallar um ástandið á Gaza.

Palestínumenn skutu í gær eldflaugum á ísraelskar byggðir við mörk Gaza og Ísraels. Ísraelar svöruðu með loftárásum og skriðdrekaárásum. Sex Palestínumenn og einn Ísraelsmaður féllu í gær og í nótt. Meðal þeirra sem létust voru þunguð kona og eins árs sonur hennar.

Nánar er fjallað um málið á RÚV.