Fyrirsagnasmiðirnir

Fjölmiðlar keppast nú um að birta fyrirsögnina „Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur“ eftir að Fréttablaðið birti skoðanakönnun í morgun.

Það er að vísu rétt að Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í könnuninni, en þar með er aðeins hálf sagan sögð.

Flokkurinn er mældur með um 24 prósenta fylgi. Það er í sögulegu samhengi langminnsta fylgi sem flokkurinn hefur fengið eða svipað og í hrunkosningunum 2009.

Önnur leið til að lýsa niðurstöðu sömu kannanar gæti því verið „Sjálfstæðisflokkurinn í sögulegu lágmarki.“

Í síðustu kosningum fékk flokkurinn um 29 prósent.

Önnur leið til að lýsa niðurstöðu sömu kannanar gæti því verið „Sjálfstæðisflokkurinn tapar einu af hverjum sex atkvæðum.“

Báðar fyrirsagnirnar væru réttar og lýsa á sinn hátt því sem er fréttnæmara en að Sjálfstæðisflokkurinn sé stærsti flokkur landsins, sem hann hefur verið í marga áratugi.

Fyrirsagnasmiðir miðlanna virðast hins vegar aðeins sjá einn og sama flötinn á athyglisverðri könnun.