Fyrirferðameiri ferðaþjónusta

Ferðaþjónustu verður gert hærra undir höfði í atvinnuvegaráðuneytinu, Komið verður á fót sér­stakri skrif­stofu innan atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem kemur til með að sinna ein­göngu mál­efnum tengdum ferða­þjón­ust­unni. Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir, ferða­mála­ráð­herra, segist stefna á að sjö stöðugildi verði innan skrifstofunnar enda ferða­þjón­ustan ekki lengur auka búgrein, heldur ein mik­il­væg­asta atvinnu­grein þjóð­ar­inn­ar.