Fyrir tveimur mánuðum var allt í blóma: nú blasir við mesti samdráttur frá hruni

Lækkun bankaskatt verður frestað um eitt ár og ýmis útgjaldaáform verða endurskoðuð næstu árin. Þetta kemur fram í endurskoðaðri fjármálastefnu sem birt í gær. Gert er ráð fyrir að afkoma geti versnað um allt að 35 milljarða. Hefur ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar og Katrínar Jakobsdóttur verið gagnrýnd í gær og í dag vegna þessa. Bjarni sagði í samtali við RÚV að ríkisstjórnin færi ekki í niðurskurð.

„Stundum er það bara vegna þess að endurmat á verkefnunum leiðir til þess að þetta færist eitthvað til. Við getum nefnt í því dæmi stjórnarráðsreitinn. Við munum kannski ekki fara í eins hraða uppbyggingu þar og að var stefnt. Uppbygging á Nýsköpunarsjóði verður kannski ekki eins brött á næsta ári og áður var að stefnt en áformin eru enn óbreytt. Ég gæti kannski talið upp nokkur svona mál en það eru ekki stórir þjónustuliðir sem almenningur mun finna fyrir.“

Líkt og kemur fram hér að ofan hefur ríkisstjórnin verið gagnrýnd. Illugi Jökulsson rithöfundur segir á Facebook:

„Fjármálaáætlun ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar var lögð fram fyrir tveim mánuðum eða þar um bil. Þá var allt í blóma. Þó var þá ljóst að loðnustofninn var að líkindum hruninn og þá var líka ljóst að flugvélið WOW var alveg örugglega hrunið.“

 Mér sýnist af hinni nýju bók Stefáns Stefánssonar að það hefði öllum varkárum stjórnvöldum mátt vera ljóst fyrir einu og hálfu ári. En ríkisstjórn Katrínar og Bjarna gerði ekkert. Hún hélt áfram að brosa framan í heiminn. En núna - tveim mánuðum seinna - blasir svo við mesti samdráttur frá hruni. Takk Katrín og Bjarni fyrir vel unnin störf.“