Íslenska bankakerfið hrundi í október 2008, en hvað svo og hver er staðan á bankakerfinu núna? Fyrir hvern er bankakerfið og hvern þjónustar það?
Þessum spurningum og fleirum er velt upp í Kjarnanum á Hringbraut í kvöld. Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir eru sem fyrr stjórnendur þáttarins, en Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra og núverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, er gestur þáttarins í kvöld.
Meðal þess sem Katrín ræðir er afstaða fjármálafyrirtækja til bankaskattsins. Fjármálakerfið á Íslandi hafi breyst mjög mikið, ekki síst með tilkomu mikilla lánveitinga lífeyrissjóða. Bankarnir standi ekki jafnfætis lífeyrissjóðunum þar sem bankaskatturinn sé bara lagður á banka. Það sama eigi við gagnvart erlendum lánveitendum, sem séu aftur orðnir mjög sterkir hjá stóru fyrirtækjunum á Íslandi.
„Þannig að samkeppnisstaða bankanna hefur skekkst mjög mikið og þetta getur til lengri tíma haft alvarleg áhrif á eignasöfn þessara banka,“ segir Katrín. Þá megi ekki gleyma því að það þýði í raun að eignir skattborgara rýrni, vegna þess að tveir þriðju hlutar bankakerfisins sé í eigu ríkisins.