Fyllti tösku Árna af smokkum: Þurfti að út­skýra málið fyrir eigin­konunni – „Það sauð á Árna“

„Ég held að Matthías Bjarna­son hafi verið við hliðina á honum niðri á þingi þegar hann opnaði töskuna og dýrðin blasti við. Árni var ekki lengi að loka töskunni,“ segir ljós­myndarinn Ragnar Axels­son í við­tali í Morgun­blaðinu í dag.

Ragnar er að hætta störfum á Morgun­blaðinu eftir 46 ára starf en í við­talinu talar hann meðal annars um feril sinn sem er í senn langur og glæstur. Í við­talinu segir Ragnar einnig skemmti­legar sögur, til dæmis eina af Árna John­sen, fyrr­verandi blaða­manni og þing­manni, en hann og Ragnar unnu lengi saman á Morgun­blaðinu.

„Ég lærði margt af Árna en við vorum líka dug­legir að stríða hvor öðrum og æsa hvor annan upp,“ segir hann í við­talinu við Orra Pál Ormars­son. Hann rifjar svo upp skemmti­lega sögu.

„Einu sinni bað Árni mig að passa frakkann sinn og skjala­töskuna. Ég notaði að sjálf­sögðu tæki­færið til að fylla hvort tveggja af smokkum í öllum regn­bogans litum. Ég held að Matthías Bjarna­son hafi verið við hliðina á honum niðri á þingi þegar hann opnaði töskuna og dýrðin blasti við. Árni var ekki lengi að loka töskunni. Um kvöldið hringdi Árni og bað mig um út­skýra fyrir Dóru, eigin­konu sinni, hvað væri í frakka­vösunum og töskunni. Það sauð á Árna en hann hefndi sín ræki­lega í Thule síðar,“ segir Ragnar.

Í við­talinu kemur fram að Ragnar ætli nú að ein­beita sér að því að mynda mann­lífið á norður­slóðum.

„Ég geng út af Morgun­blaðinu með sting í hjarta. Ég hef verið meira þarna en heima hjá mér undan­farin 44 ár og þykir of­boðs­lega vænt um blaðið. Ég hef fórnað öllu fyrir Morgun­blaðið og er stoltur af mínu fram­lagi gegnum tíðina,“ segir hann meðal annars í við­talinu.