Bók James Comeys, FBI forstjórans sem Trump rak úr embætti í fyrra, er ekki enn komin út, en er samt söluhæsta bókin á Amazon í þremur flokkum: Stjórnmál & félagsvísindi; Lögfræði og Ævisögur.
Útgáfudagur bókarinnar er 17. apríl. Mikil leynd hvílir yfir innihaldinu en titillinn er í grófri þýðingu: „Æðri hollusta: Sannleikur, lygi og forysta.“ Eftirvæntingin eftir henni er slík að aðeins útgáfa Harry Potter bókanna hefur skapað annað eins.
Útgefandi bókarinnar, Flatiron Books, gætir ítrasta öryggis til að koma í veg fyrir að efnisatriði úr bókinni, til dæmis varðandi samskipti Comeys og Trumps Bandaríkjaforseta, leki og verði að sprengifréttum.
Venjulega ganga pappírseintök af handriti svona bóka milli þeirra sem sjá um ritstýringu en í þetta skipti hefur útgefandinn komið upp rafrænu, vandlega aðgangsstýrðu ritstýringarkerfi, sem aðeins þeir sem koma að verkinu hafa aðgang að. Heiti verkefnisins í kerfinu er einnig leynikóðað, svo aðrir starfsmenn útgáfunnar sem ekki tengjast því gætu ekki vitað hvar það er að finna jafnvel þó þeir leituðu eftir því.
Starfsmenn þeirra vöruhúsa, þar sem bókin á endanum fer í gegn, hafa líka verið látnir undirrita þagnareiða og flutningstíminn er jafnframt styttur verulega. Bækur eru oft keyrðar út úr vöruhúsunum til verslanna tveimur vikum fyrir útgáfudag, en í tilviki Comey bókarinnar verður fresturinn styttur til að passa betur upp á sjálf eintök bókarinnar.
Gert er ráð fyrir að í bók Comeys verði að finna lýsingar frá fyrstu hendi um samskipti við forsetann og gang mála í Hvíta húsinu, svipað því sem var í nýlegri metsölubók blaðamannsins Michael Wolff. Trúverðugleiki höfundarins verður þó óneitanlega meiri.
Fyrir utan opinberan vitnisburð Comeys fyrir þingnefnd í fyrra, hefur hann verið þögull sem gröfin um samskipti sín við forsetann, brottreksturinn frá FBI og Rússarannsóknina.