Fylkir Þórisson, fyrrverandi starfsmaður RÚV, er látinn 78 ára að aldri. Fylkir starfaði alla sína starfsæfi hjá RÚV þar sem hann var lengst af deildarstjóri þróunarsviðs myndtækjadeildar. Hann hóf störf hjá nýstofnuðu RÚV eftir nám í Þýskalandi og starfaði þar óslitið til ársins 2007, samtals í 40 ár.
Útför Fylkis fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 6. mars, klukkan 15.
Fjölmargir minnast Fylkis í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag, þar á meðal Jón H.B. Snorrason, saksóknari hjá Ríkissaksóknara og frændi Fylkis.
„Hann var einstakur, hógvær, umhyggjusamur, glaðlegur og traustur. Við okkur yngri var hann einstaklega natinn og þolinmóður. Hann leyfði okkur að hanga með sér þótt aldursmunurinn væri umtalsverður. Það var alltaf eitthvað spennandi að gerast hjá Fylki. Mér fannst þá að hann gæti allt. Ég hef á lífsleiðinni komist að því að sú var raunin. Hann smíðaði hús, innanstokksmuni, gerði við öll tæki stór og smá, bíla og hvaðeina sem nöfnum tjáir að nefna,“ segir Jón meðal annars.
Í starfi sínu hjá RÚV sá Fylkir meðal annars um hönnun á tæknilegum tækjakosti Sjónvarpsins í samstarfi við aðrar deildir, hafði umsjón með uppsetningu búnaðarins og smíði í kringum hann. Hann sá um umskiptin úr svart/hvítu í lit og endurhannaði útsendingarkerfið þegar Sjónvarpið flutti af Laugavegi upp í Efstaleiti. Þá hafði hann veg og vanda af útsendingarbílum Sjónvarpsins og tæknilegum viðbótum við útsendingu, textavarpinu til dæmis.
Eyjólfur Valdimarsson, rekstrarstjóri hjá RÚV og yfirmaður tæknimála, fer hlýjum orðum um Fylki í grein sinni. „Fylkir var traustur starfsmaður og var að jafnaði léttur í lund,“ segir hann og bætir við að á löngum ferli sínum hafi Fylkir öðlast fjölbreytta reynslu í vinnslu og meðferð sjónvarpsefnis.
„Hann varð lykilmaður í hönnun og uppsetningu tæknikerfa Sjónvarpsins. Þar kom fram góð yfirsýn hans yfir sjónvarpstæknina. Hann fylgdist vel með þróun hennar og hafði útsjónarsemi til að meta hvað hentaði daglegum rekstri Sjónvarpsins og hvernig takmörkuð fjárráð til fjárfestinga í tæknibúnaði nýttust sem best. Þar var Fylkir mjög tillögugóður.“
Fylkir var vel á sig kominn og mikill göngugarpur eins og sást berlega í viðtali sem birtist við hann í Morgunblaðinu í fyrrasumar. Tilefnið var ganga Fylkis frá Osló til Þrándheims, 643 kílómetrar, sem hann gekk einn.