Fylgi Sjálfstæðisflokksins var í frjálsu falli í desember sl. samkvæmt nýrri könnun MMR. Stuðningur við Sjálfstæðisflokkinn var skömmu fyrir jól aðeins 20,6% og hefur aldrei mælst lægri. Píratar eru enn á toppnum með 35% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkaði milli kannanna sem og stuðningur við hinn stjórnarflokkinn, Framsókn. Myndu 11,5 prósent kjósa framsókn en 12,9 prósent síðast. Sjálfstæðismenn mældust með 22,9% fylgi síðast, tapa 2,3 prósentustigum. VG og Samfylking braggast um 2-3 prósentustig og Björt framtíð stendur á þröskuldi þess að ná inn þingmönnum.
Sjá má allt um könnun MMR sem gerð var 18. desember síðastliðinn hér. Þar koma fram miklar sveiflur á skömmum tíma.
Kjarninn benti fyrstur íslenskra fjölmiðla á niðurstöður MMR í frétt fyrr í dag.