Fylgisaukning xb birgittu ofviða

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segir í nýlegri færslu á facebook að það sé áhugavert að lesa það út úr fylgiskönnun Gallup að þeir sem hafi komið fram í Panamaskjölunum fái verðlaun hjá Íslendingum. \"Ekki græt ég tilfærslur á fylgi við okkur,\" skrifar Pírata og á þar við að Píratar féllu um nokkuð prósent sem Gallup telur þó á mörkum skekkjumarka, \"en að almenningur umbuni panamaflokkunum með auknu trausti eftir allt það sem á undan er gengið er mér algerlega ofviða,\" skrifar Birgitta.

Lætur hún þess einnig getið að Framsókn bæti við sig 4% frá síðustu könnun (fylgisaukning upp á 1/4) og Sjálfstæðisflokkur haldi sínu. \"Ég hreinlega þori ekki að deila þeirri staðreynd með erlendum blaðamönnum því nú er sem sú mikla mótmælaalda sem reið yfir landið eins og siðferðislegur jarðskjálfti hafi hafi þveröfug áhrif,\" skrifar Birgitta og á þar væntanlega við að færsluna skrifi hún aðeins á íslensku en ekki líka ensku eins og hún gerir stundum.