Fylgið var 30 prósent þegar ég fór

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, sagði í Kastljósi í kvöld að staða Samfylkingarinnar væri flókin og margar samverkandi skýringar á hvernig komið er fyrir flokknum.

Ingibjörg Sólrún minnti á þegar hún hætti sem formaður flokksins hafi fylgi hans verið um þrjátíu prósent, en er nú tæp sex prósent.

Hún sagði stöðuna ekki, hún væri þyngri en tárum taki. Hún benti á að jafnaðarmenn hafi dreifst á marga flokka.