Fylgi Vinstri grænna minnkar um nær þrjú prósentustig í könnun Gallup á fylgi flokkanna og fylgi Viðreisnar eykst um tæplega tvö prósentustig. Heilt yfir eru annars litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi og meirihlutinn, 58 prósent, styður ríkisstjórnina. Fylgi við stjórnina minnkar um rúmlega 2 prósentustig milli mánaða.
Nær 14% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag og rösklega 8% segjast myndu kjósa Viðreisn. Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,1 – 1,1 prósentustig. Rösklega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 16% Samfylkinguna, tæplega 13% Pírata, rúmlega 9% Framsóknarflokkinn, nær 9% Miðflokkinn, um 5% Flokk fólksins og rösklega 1% aðra flokka. Tæplega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og ríflega 6% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.