Fylgi við viðreisn tæp 6%

Nokkrar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða. Helsta breytingin er að fylgi við Vinstri græn dalar um þrjú prósentustig.

Ef kosið væri núna myndu 21% kjósa Vinstri græn.

Rösklega 27% myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Rúmlega 14% kysu Pírata.

Ríflega 11% kysu Framsóknarflokkinn.

Rösklega 9% kysu Samfylkinguna.

Tæplegar 6% kysu Viðreisn.

Nær 4% kysu Flokk fólksins.

Rúmlega 3% kysu Bjarta framtíð.

Um 4% nefna aðra flokka.

Ein 10% taka ekki afstöðu eða neita að svara.

Nær 9% segjast munu skila auði eða ekki kjósa af kosið yrði nú til Alþingis.  

Tæp 37% segjast styðja ríkisstjórnina.

Gallup gerði þessa könnun 15.6 til 2.7. sl.

rtá

Nánar www.gallup.is