Fylgi sjálfstæðisflokks eykst um 67%

Ný skoðanakönnun 365 slær allt annan takt en nýjustu kannanir MMR og Gallup, einkum hvað varðar fylgi Sjálfstæðisflokksins. Allt annan. 365 mælir fylgi Sjálfstæðisflokksins 34,6 prósent sem er 67 prósentum meira fylgi en MMR mældi fylgi hans í könnun sem birt var í gær.

Fylgi Viðreisnar mælist á allt annan hátt hjá 365 en hjá MMR og Gallup. 365 segir Viðreisn mælast með 7,3 prósent, en MMR 12,3 og Gallup 12,2 prósent.

Fylgi Samfylkingarinnar mælist einungis 5,9 prósent hjá 365, en 8,8 hjá Gallup og 9,3 hjá MMR.

Aðeins helmingur svarenda 365 tók afstöðu.

Þar sem svo mikill munur er milli kannanna er brýnt að ný könnun birtist sem fyrst, en Þjóðarpúls Gallup er væntanlegur.

Hversu fáir gefa 365 upp afstöðu sína er eftirtektarvert og er eflaust til skoðunar hjá fyrirtækinu. 

 

  GallupMMR365
Björt framtíð2,94,93,6
Framsókn 9,412,212,6
Viðreisn 12,212,37,3
Sjálfstæðisflokkur25,520,634,6
Píratar 23,121,619,9
Samfylkingin8,89,35,9
VG 13,511,512,9