Fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist samkvæmt nýrri Gallup-könnun samtals 41.9% og hefur ekki verið minna frá myndur stjórnarinnar í fyrra. Sjálfstæðisflokkur nýtur stuðnings 25% kjósenda, VG 10.3% og Framsóknarflokkurinn er með 6.6%. Hér er um að ræða minnsta fylgi sem flokkarnir hafa mælst með frá myndun stjórnarinnar í lok nóvember 2017. Um er að ræða stóra netkönnun Gallup sem stóð yfir frá 3. september til 1. október og náði til 5.460 kjósenda.
Samfylking mælit með 19.3% fylgi, Píratar með 11.5%, Viðreisn 10.7%, Miðflokkur 9.8% og Flokkur fólksins 5.9%.
Einnig var spurt um fylgi við ríkisstjórnina. Það reyndist nú vera 48.6% en var 74% í desember sl. skömmu eftir stjórnarmyndun. Þannig hefur ríkisstjórnin tapað þriðja hverjum kjósanda frá því stjórnin var mynduð.