Fylgi pírata á niðurleið, framsókn upp

Nokkrar skoðanakannanir sem birtar hafa verið undanfarið benda til þess að fylgi Samfylkingar sé botnfrosið á bilinu 8-10%. Þessi fyrrum annar af tveimur turnum íslenskra stjórnmála sem slagaði upp í vinsældir Sjálfstæðisflokksins virðist ekki njóta þess írafárs sem skapast hefur vegna Panamaskjalanna.

MMR var að birta niðurstöður úr nýlegri könnun um fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina. Könnunin var framkvæmd dagana 22. til 26. apríl 2016 og var heildarfjöldi svarenda 953 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Helstu niðurstöður eru að fylgi Pírata minnkaði um tæp 8 prósentustig milli mælinga (fylgi er nú 28,9%).

Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um rúm 5 prósent (fylgið er nú 27,8%).

Fylgi Framsóknar jókst um 2,5 prósentustig.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 32,9%, eftir að hafa mælst 26% í síðustu mælingu og 32,4% þar áður.

Fylgi Bjartrar framtíðar minnkaði um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingu og er nú 3,4% sem myndi ekki duga fyrir þingmönnum.

Fylgi Vinstri grænna jókst um rúmt prósentustig og er 14%

Lítil sem engin breyting var á fylgi Samfylkingarinnar. 9,7%