Fylgi framsóknar þokast upp

Píratar mælast nú með 35,5% fylgi og þar með stærsti stjórnmálaflokkurinn á Íslandi níunda mánuðinn í röð. Fylgi Framsóknarflokksins þokast heldur upp á við og mælist nú 12,9% sem er marktæk aukning frá í október.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 22,9% borið saman við 23,7% í síðustu könnun þann 4. nóvember 2015. Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,9% borið saman við 10,8% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 9,4% borið saman við 9,9% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,4% borið saman við 10,5% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú og í síðustu könnun 4,6%. Fylgi Dögunnar mældist 1,1% borið saman við 0,7% í síðustu könnun.

Fylgi annarra flokka mældist undir 1%.