Fylgdarþjónusta auglýst í borginni

Fylgdarþjónustuvefurinn Cityoflove.com auglýsir þessa dagana margvíslega fylgdarþjónustu, sem svo er nefnd, í Reykjavík og segjast forkólfar Ástarborgarinnar geta þar útvegað konur fyrir margvísleg tilefni.

Ekki þarf að lesa lengi á milli línanna til að átta sig á að hér er um vændisþjónustu að ræða, að minnsta kosti í mörgum tilvikum þjónutsunnar, en á síðunni er hægt að fletta eftir nöfnum all margra kvenna sem þar koma fram undir dulnefnum.

Ein þessara stúlna er Inna Squirt sem kynnir sig með þeim orðum - raunar á ensku - að hún sé hlý, falleg og vinaleg fylgdarkona sem bíði þess að gleðja menn. Hún kveðst vera mjög kynþokkafull með afar stór brjóst, án aðskotaefna.

Á vefnum er látið að því liggja að rautt hverfi sé að myndast á horni Laugavegar og Frakkastígs í höfuðborginni við ysta haf, en þar sé ekki ólíklegt að sjá fylgdarkonum af þessu tagi bregða fyrir.